32 | Kórónuveira í Rússlandi, Trump í basli, og tígrisdýr í haldi mann
Update: 2020-04-171
Description
Í þrítugasta og öðrum þætti Heimskviðna er áfram fjallað um áhrif Covid-19 víða um heim. Fjölmörg ríki hafa slakað á aðgerðum sem miða að því að hindra útbreiðslu veirunnar, á meðan önnur ríki herða aðgerðir enn frekar, þar á meðal Kína. Og hver er staðan í stærsta landi heims, Rússlandi?
Forseti Bandaríkjanna hefur nú verið gagnrýndur fyrir að bregðast seint og illa við yfirvofandi heimsfaraldri. En eins og honum einum er lagið snýr Donald Trump vörn í sókn og segir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina bera mestu ábyrgðina. Og í refsingarskyni ætlar hann að hætta að styrkja stofnunina í bili, ákvörðun sem hefur verið harðlega gagnrýnd víða. Pálmi Jónasson segir okkur frá Trump, Covid og pólitíkinni.
Það hefðu líklega ekki margir velt fyrir sér eignarhaldi á tígrisdýrum ef það væri ekki fyrir heimildaþættina Tiger king sem hafa notið gífurlegra vinsælda á streymisveitu Netflix undanfarnar vikur. Þættirnir njóta góðs af samkomubanni og fólk víðar en á Íslandi virðist gleypa þá í sig enda efnistökin lygileg; samfélag fólks í Bandaríkjunum sem heldur tugi og hundruð tígrisdýra, ljóna og annarra stórkatta. Þótt dýrin spili lykilhlutverk í þáttunum sjö þá hverfast þættirnir fljótlega um atferli mannskepnunnar. Halla Ólafdsóttir segir okkur nánar frá þessu og ræðir við Þorkel Heiðarsson líffræðing og deildarstjóra Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og Ester Rut Unnsteinsdóttur spendýravistfræðing.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Comments
Top Podcasts
The Best New Comedy Podcast Right Now – June 2024The Best News Podcast Right Now – June 2024The Best New Business Podcast Right Now – June 2024The Best New Sports Podcast Right Now – June 2024The Best New True Crime Podcast Right Now – June 2024The Best New Joe Rogan Experience Podcast Right Now – June 20The Best New Dan Bongino Show Podcast Right Now – June 20The Best New Mark Levin Podcast – June 2024
In Channel